Skilmálar

Skilmálar

1. Almennt

Lumex ehf., kt. 440785-0699, Skipholti 37, 105 Reykjavík er sérvöruverslun raffanga fyrir einstaklinga, fyrirtæki og stofnanir.

2. Aðilar og gildissvið

Þessir skilmálar gilda um notkun á vefsíðu Lumex og um kaup á vöru eða þjónustu fyrirtækisins. Notandi er aðili sem notar vefsíðu Lumex á einn eða annan hátt. Kaupandi er aðili sem kaupir, og eftir atvikum pantar, vöru eða þjónustu af Lumex. Tilboðshafi er aðili sem fengið hefur tilboð frá Lumex.

Skilmálar þessir tilgreina annars vegar réttindi og skyldur Lumex og hins vegar réttindi og skyldur notanda, kaupanda og tilboðshafa. Með því að nota vefsíðu Lumex eða kaupa vöru eða þjónustu af fyrirtækinu samþykkja framangreindir aðilar að gangast undir skilmála þessa.

3. Tilboð, pöntun, kaup og afhending

  • Innihald tilboðs. Tilboðshafi skal fara vel yfir og sjá til þess vöruinnihald sé í samræmi við þær óskir sem hann hefur lagt fram. Hafi tilboðshafi ekki gert athugasemdir við innihald tilboðs skal líta svo á að um fullgilt tilboð sé að ræða í samræmi við gögn, teikningar og óskir tilboðshafa.
  • Gildistími tilboðs. Gildistími tilboðs er einn mánuður frá dagsetningu þess nema annað sé sérstaklega tekið fram. Að þeim tíma loknum skal endurskoða alla liði tilboðsins og endurreikna þá.
  • Pöntun. Pöntun kaupanda telst bindandi þegar kaupandi hefur lagt hana fram. Sú staða getur komið upp að vara sé ekki til á lager þegar kaupandi þarf að nota hana. Það er á ábyrgð kaupanda að gera ráðstafanir tímanlega.
  • Sérpöntunarvara. Pöntun kaupanda telst bindandi þegar kaupandi hefur lagt hana fram.
  • Kaup á vöru eða þjónustu. Kaup á vöru eða þjónustu eru bindandi fyrir kaupanda þegar hann hefur staðfest þau.

4. Upplýsingar, verð og kostnaður

Verð á vefsíðu Lumex eru birt með fyrirvara um innsláttar-, prent- og myndvillur. Verðupplýsingar sem eru ranglega birtar á vefsíðu fyrirtækisins teljast ekki bindandi fyrir Lumex.

Ef tilboð er ranglega reiknað áskilur Lumex sér rétt til leiðréttingar á tilboðsverðum frá dagsetningum tilboðs þar til sölumaður hefur gengið frá sölupöntun í samráði við tilboðshafa.

Þegar um sérpöntunarvöru er að ræða skal kaupandi greiða 50% fyrir fram nema að um annað sé samið eða .

Þegar um sérpöntunarvöru er að ræða getur Lumex óskað eftir 50% innborgun til staðfestingar á pöntun nema að um annað sé samið eða .

Ef óskað er eftir þjónustu frá starfsmanni Lumex mun kaupandi greiða tímagjald samkvæmt gildandi verðskrá fyrirtækisins.

Kaupandi skal bera kostnað af hraðsendingum á vörum sem ekki eru pantaðar tímanlega.

Komi ekki til greiðslu af hálfu kaupanda skal hann greiða dráttarvexti í samræmi við lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu og innheimtukostnað vegna innheimtu kröfunnar.

 

5. Skil á vörum / Endurgreiðsla

Kaupandi getur skilað vöru ef hún hefur ekki þá eiginleika sem leiða má af samningi við Lumex.

Kaupandi getur skilað vöru sé hún í söluhæfi ástandi, sannanlega keypt í Lumex og lagervara. Lumex getur ákveðið að víkja frá þessu, einkum þegar möguleiki er á að koma vörunni í söluhæft ástand með nýjum umbúðum eða þrifum. Lumex hefur rétt á að meta hvert tilfelli fyrir sig og taka 15% afföll af kaupverði ef vinnu þarf að inna af hendi til að koma vörunni í söluhæft ástand.

Niðurmældum Led borðum, köplum og vörur sem einungis eru seldar í heilum pakkningum er ekki hægt að skila áteknum.

Sérpöntunarvöru er ekki hægt að skila nema hún hafi ekki þá eiginleika sem leiða má af samningi kaupanda við Lumex.

Sé ofangreindum skilmálum um ástand vöru mætt geta vöruskil farið fram innan við ári frá kaupdegi og fær kaupandi þá endurgreitt á sama verði og hann keypti vörurnar á.

Fari vöruskil fram að liðnu ári frá kaupdegi eru tekin 30% afföll af núvirði úttektarkjara kaupanda.


6. Fallið frá viðskiptum / Riftun

Lumex áskilur sér rétt til að falla frá viðskiptum ef fyrirtækið sér fram á að kaupandi geti ekki staðið í skilum vegna kaupa á vörum eða þjónustu fyrirtækisins.

Lumex áskilur sér rétt til að takmarka eða loka á aðgang kaupanda ef hann vanefnir þær skyldur sem leiða af samningi hans við Lumex.

Lumex hefur heimild til að rifta samningi um reikningsviðskipti þegar um er að ræða verulega vanefnd af hálfu kaupanda.


7. Höfundaréttur

Hönnun Lumex er eign fyrirtækisins og veitir einungis heimild til persónulegra nota gegn umsömdu gjaldi og til að eiga í viðskiptum við Lumex. Með öllu er óheimilt að nota efni hönnun Lumex án samþykkis Lumex.

Óheimilt er að afrita gögn af síðunni í heild eða að hluta til. Með afritun er m.a. átt við skjáskot, prentun eða tölvulestur gagna. Óheimilt er að endurbirta efni síðunnar eða nota það til endursölu. Öll dreifing, endurútgáfa eða rafræn afritun teikninga frá Lumex er með öllu óheimil.

Framangreind upptalning á óheimilli notkun er ekki tæmandi talin.


8. Persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga

Um meðferð persónuupplýsinga gilda lög nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga.


9. Ágreiningur

Um skilmála þessa gilda íslensk lög og skulu ágreiningsmál vegna þeirra rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.


10. Breytingar

Lumex áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum og teljast þeir bindandi þegar samningsaðilar hafa fengið tilkynningu þess efnis. Sending til aðila og/eða birting á vefsíðu Lumex telst fullnægjandi tilkynning.


11. Gildistími

Skilmálar þessir gilda frá 1. Júlí 2020.